Hamar/Ægir
17.05.2010 08:38:50 / 4flokkur

Foreldrafundur

Miðvikudaginn 19. maí n.k. verður foreldrafundur allra yngri flokka Hamars í knattspyrnu haldinn í vallarhúsinu við Grýluvöll. Fundurinn hefst kl. 20:00 og verður um klukkustundar langur, en þar munu þjálfarar fara yfir mikilvæg mál fyrir komandi keppnistímabil, s.s.  æfingatíma, mót sumarsins, fjáraflanir ofl. Fulltrúar stjórnar verða einnig á staðnum. Mikilvægt er að foreldrar mæti á þennan fund.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og bestu kveðjur,
Ólafur Jósefsson
Yfirþjálfari yngri flokka
Gsm. 821 – 4583


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2010 21:59:10 / 4flokkur

Æfing Fimmtudag.

Æfingin á morgun (Fimmtudag) er kl 17:30 á Hamarsvelli!!! Látið það ganga til strákana.

Kveðja
Ölli.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2010 08:42:09 / 4flokkur

Æfing í dag.

Æfingin í dag, Þriðjudag er á Hamarsvellinum kl 17:30. Látiði alla strákana vita.

Ég minni ykkur á að skila peningunum fyrir pokasöluna!!!

Kveðja
Ölli.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.04.2010 01:24:21 / 4flokkur

Æfingar í vikunni!

Sælir.
Æfingarnar verða með breyttu sniði þessa vikuna.

Þriðjudag - frí

Miðvikudag - æfing á Hamarsvellinum (gras) kl 16:00 - ná í pokana eftir æfingu á grýluvelli.

Fimmtudagur - frí

Laugardagur - Æfing kl 15:00. Mæta með bæði æfingaföt til þess að vera inni í íþróttahúsi og úti á gervigrasi

Kveðja
Ölli.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.04.2010 21:17:23 / 4flokkur

Æfingar eftir páskafrí

Sælir strákar.

Vonandi hafið þið haft það fínt um páskana. En núna byrja æfingarnar af krafti!

Ég vona að þið verðið jafn duglegir að mæta eins og þið voruð fyrir páska.
Það verða sömu æfingatímar eins og var fyrir páska, nema að æfingin á Fimmtudögum verður kl 18:00, (en EKKI 17:30)!

Næsta æfing er á morgun kl 18:00.

Æfingataflan okkar er vinstra megin uppi í horninu!

Hlakka til að sjá ykkur.
Kveðja
Ölli.

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2010 20:31:42 / 4flokkur

Enginn æfing á Fimmtudag!!

Það er enginn æfing á fimmtudag 25 mars vegna árshátíðar í skólanum. Næsta æfing er á laugardaginn kl 15:00 í íþróttahúsinu!

Kveðja
Ölli

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2010 17:15:05 / 4flokkur

Meistaradeildin!

Nú er komið að því að við ætlum að hittast saman og horfa á meistaradeildina á alvöru leik! Man Utd - AC Milan.

Leikurinn er á morgun, og er mæting upp í skóla kl 19:30. Við ætlum aðeins að ræða saman áður en leikurinn hefst um framhaldið svo það er mikilvægt að allir mæti á réttum tíma.

Við ætlum að fá okkur pítsu saman, svo þeir sem ætla vera með í því eiga að koma með 500kr. með sér!!


Hlakka til að sjá ykkur! Áfram Man Utd!!!!

Kveðja
Ölli.


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.03.2010 17:09:57 / 4flokkur

Æfingar í Hveragerði.

Sælir strákar mínir.

Nú er svo komið að við ætlum að æfa bara í hveragerði aftur.

Æfingatímarnir verða eftirfarandi.

Mánudagar  -  Gervigras 18:30        
Þriðjudagar - Gervigras 17:30
Fimmtudagar - Gervigras 17:30    
Laugardagar - Íþróttahús 15:00

Við byrjum í dag á gervigrasinu kl 17:30.

Nú langar mig að sjá alla stráka mæta á æfingar og setja smá metnað í þetta. Ef allir mæta á æfingar þá verður þetta þrusu gaman!! Ef þið komist EKKI á æfingar, þá vill ég að þið skrifið það hér inn á síðuna eða að senda mér sms!

Framundan er hjá okkur að við ætlum að hittast og horfa á meistaradeildina og svo verður æfingaleikur bráðlega.

Hlakka til að sjá ykkur!

Fótboltakveðja
Ölli - 8455900


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.02.2010 14:33:28 / 4flokkur

Æfing á mánudag

:!:  Æfingin á mánudag verður ekki í Þorlákshöfn heldur á litla gervigrasinu okkar í Hveragerði kl. 16:00 - 17:30 :!:

Bestu kveðjur,
Óli Jó

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.02.2010 10:19:17 / 4flokkur

Samstarfið

Sælir strákar.

Til að verjandi sé að halda áfram samstarfinu við Ægi þurfum við að ná 80% mætingu á æfingar, sem þýðir að alltaf þurfa að mæta ca. 10 strákar á ALLAR æfingar.  :!:

Við gefum þessu þessa viku og næstu og metum svo framhaldið.

Því hvet ég ykkur til að mæta betur á æfingar - þ.e. ef þið viljið halda þessu samstarfi áfram.  :!:

Munið svo að boða þarf forföll á allar æfingar.  :!:

Bestu kveðjur,
Óli Jó

» 11 hafa sagt sína skoðun

04.02.2010 17:10:49 / 4flokkur

Enginn æfing í dag!!!

Enginn æfing er í dag, fimmtudag vegna forfalla þjálfara í Þorlákshöfn. Í staðinn ætlum við að taka æfingu á gervigrasinu á morgun kl 18:00

Kveðja
Ölli.


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.02.2010 00:41:56 / 4flokkur

FJÁRÖFLUN!!

Komiði sæl og blessuð.

N.k Laugardag. (6.feb) verður fjáröflun fyrir yngri flokka starfsemi knattspyrnudeildarinnar. Við ætlum okkur að fara í dósasöfnun. Mikilvægt er að allir komi og taki þátt í þessu.

Söfnunin hefst kl 11:00 við Kjörís.

Það vantar einnig foreldra til þess að taka þátt til að keyra strákana á milli staða.

Kveðja
Ölli

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2010 00:41:16 / 4flokkur

Æfing um helgina.

Sælir strákar.

Það verður enginn æfing á Laugardaginn vegna körfuboltamóts í íþróttahúsinu.
Í staðinn ætlum við að æfa á sunnudaginn kl 15:40 í íþróttahúsinu.

Kveðja
Ölli.


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2010 21:17:51 / 4flokkur

ÆfING LAUGARDAG!

Æfingin laugardaginn 30 janúar verður frá 15:30 til 16:30.
Hún verður inni í íþróttahúsinu.
Kveðja
Ölli

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2010 21:28:10 / 4flokkur

Æfingar framundan

Sælir strákar og takk fyrir fundinn í dag.

Næsta æfing er sameiginleg með Ægi á morgun fimmtudag kl. 18:00 á gervigrasinu í Hveragerði.
Svo er æfing á laugardag kl. 15:00 hjá Ölla.

Æfingarnar er að finna undir liðnum æfingatafla hér til vinstri á síðunni.

Æfingar hjá 4.flokki:

Mánudagar kl. 18:00-19:30 Þorlákshöfn. Gervigras/úti - sameiginleg æfing - rúta FER kl. 17:30.
Miðvikudagar kl. 18:00-20:00 Þorlákshöfn. Íþróttahús/inni - sameiginleg æfing - rúta FER kl. 17:30.
Fimmtudagar kl. 18:00-19:30 Hveragerði. Gervigras/úti - sameiginleg æfing.
Laugardagur. 15:00-16:30. Hveragerði Íþróttahús/inni.

Lárus (Ægi) 822 - 7084
Ölli (Hamar) 845 - 5900
Óli (Hamar) 821 - 4583

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 17791